Í þessari viku eigið þið að leysa jólakrossgátu. Lausnina skrifið þið á blað og sendið okkur fyrir 17. desember. Munið eftir að láta fylgja upplýsingar um nafn, heimilisfang og aldur. Þá eigið þið möguleika á að vinna geisladiskinn Stóra barnaplatan 3. Framan á umslagið skrifið þið:
Morgunblaðið
Börn - verðlaunaleikur
17/12/05
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Verðlaunahafar
Fyrir hálfum mánuði áttuð þið að leysa flókna talnagátu. Eins og við sögðum í síðustu viku þá urðu mistök í þeirri gátu og féllu nokkrar tölur niður. En þrátt fyrir það reyndu nokkrir krakkar að leysa gátuna og sendu okkur lausnir. Þrír af þeim sem reyndu voru dregnir út og fá bókina Risaeðlutíminn.
Jón Bjarni Ólafsson,
10 ára,
Lindarbergi 26,
221 Hafnarfirði.
Jón Trausti Harðarson,
8 ára,
Lyngrima 3,
112 Reykjavík.
Sigurður E. Ármannsson,
10 ára,
Vesturtúni 24,
225 Álftanesi.
Til hamingju, krakkar, þið getið nálgast bókina ykkar í afgreiðslu Morgunblaðsins á skrifstofutíma eða hringt og fengið hana senda.