— Morgunblaðið/Kristján
Akureyri | Jólaverslun er nú að fara í fullan gang og margt hefur verið um manninn í verslunum bæjarins að undanförnu. Nú er veður hið besta, frost á undanhaldi, færð góð og við slíkar aðstæður leggja nágrannar gjarna land undir fót og heimsækja bæinn.
Akureyri | Jólaverslun er nú að fara í fullan gang og margt hefur verið um manninn í verslunum bæjarins að undanförnu. Nú er veður hið besta, frost á undanhaldi, færð góð og við slíkar aðstæður leggja nágrannar gjarna land undir fót og heimsækja bæinn. Gert er ráð fyrir töluverðum straumi fólks frá Austfjörðum og eins úr vestri um helgina, en þá verða verslanir opnar umfram venju. Þessi ungi maður var að glugga í jólabækurnar og virðist niðursokkinn í það sem í þeim stendur.