CARLOS Alberto Parreira, þjálfari heimsmeistaraliðs Brasilíu, var mjög ánægður með mótherja liðsins í riðlakeppninni. "Það er hægt að segja að þetta sé léttur riðill fyrir Brasilíu, en í raun er það ekki rétt.
CARLOS Alberto Parreira, þjálfari heimsmeistaraliðs Brasilíu, var mjög ánægður með mótherja liðsins í riðlakeppninni. "Það er hægt að segja að þetta sé léttur riðill fyrir Brasilíu, en í raun er það ekki rétt. Við verðum að vera varkárir og lið eins og Japan er í sjötta sinn í úrslitum og hefur bætt sig undir stjórn Zico," sagði Parreira í Leipzig í gær.