Snjóruðningsmenn á Dalvík hafa haft í nógu að snúast síðustu daga en í gærmorgun var búið að opna allar götur fyrir umferð, að sögn Þorsteins Björnssonar veitustjóra. Mjög snjóþungt var á Dalvík eftir mikla snjókomu síðustu daga. Myndatexti: Börnin á Dalvík kippa sér ekki upp við snjóskaflana í bænum og þessar ungu dömur voru afslappaðar í klifurgrindinni við skólann sinn.
Snjóruðningsmenn á Dalvík hafa haft í nógu að snúast síðustu daga en í gærmorgun var búið að opna allar götur fyrir umferð, að sögn Þorsteins Björnssonar veitustjóra. Mjög snjóþungt var á Dalvík eftir mikla snjókomu síðustu daga. Myndatexti: Börnin á Dalvík kippa sér ekki upp við snjóskaflana í bænum og þessar ungu dömur voru afslappaðar í klifurgrindinni við skólann sinn. — Morgunblaðið/Kristján
Dalvíkurbyggð | Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2006 var samþykkt á síðasta fundi bæjarstjórnar nú fyrir skömmu.

Dalvíkurbyggð | Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2006 var samþykkt á síðasta fundi bæjarstjórnar nú fyrir skömmu. Samkvæmt fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir að samanteknir reikningar A og B hluta verði gerðir upp með neikvæðri rekstrarniðurstöðu sem nemur tæpum 30 milljónum króna. Við endurskoðaða fjárhagsáætlun ársins 2005 var sambærileg tala um 40 milljónir króna, sem þó hafði lækkað úr 105 milljónum króna frá upphaflegri áætlun yfirstandandi árs.

Eigið fé lækkar um niðurstöðu rekstrarreiknings og er áætlað að það verði í lok næsta árs rúmar 282 milljónir króna. Í upphaflegri áætlun ársins 2005 ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2006, 2007 og 2008 var gert ráð fyrir að eigið fé í árslok 2006 yrði um 59,5 milljónir króna, samanborið við núverandi áætlun, sem eins og fyrr sagði er upp á rúmar 282 milljónir króna. Mismunur þessara áætlana, eða 223 milljónir króna, er að nokkru mælikvarði á jákvæða þróun fjárhagsstöðu Dalvíkurbyggðar 2ja síðustu ára og áætlunar fyrir komandi ár. Nokkur árangur hefur því náðst í lækkun útgjalda og tekjur hafa hækkað.

Annar mælikvarði á fjárhagsstöðu er sjóðstreymisyfirlit. Þar kemur fram að veltufé frá rekstri er 104,3 milljónir króna. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er 100,1 milljón króna. Í heild eru lántökur áætlaðar 58 milljónir króna þegar afborganir eldri lána eru 65 milljónir króna og reiknað er með að veltufé í árslok 2006 verði 80,6 milljónir króna. Þar með er veltufjárhlutfall viðunandi eða 1,11 eins og fram kemur í lykiltölum.

Þessi niðurstaða fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2005 bendir því til þess að fjármál sveitarfélagsins séu að þróast í rétta átt. Þrátt fyrir að fjárhagsstaða sé enn neikvæð hefur mikill árangur náðst í þá átt að draga úr hallanum. Sem fyrr segir er gert ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu sem nemur um 30 milljónum króna en samanborið við fjárhagsáætlun ársins 2005, þar sem gert ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 105 milljónir króna, er um að ræða lækkun upp á um 75 milljónir króna. Þetta kemur fram á vef Dalvíkurbyggðar.