Jafnrétti Blikkrás hlaut fyrstu viðurkenningu Jafnréttisnefndar Akureyrar, en það var Sigrún Stefánsdóttir, t.h., þáverandi formaður nefndarinnar, sem afhenti hana, Oddur Helgi Halldórsson framkvæmdastjóri er í miðjunni og systir hans Freydís til vinstri á myndinni.
Jafnrétti Blikkrás hlaut fyrstu viðurkenningu Jafnréttisnefndar Akureyrar, en það var Sigrún Stefánsdóttir, t.h., þáverandi formaður nefndarinnar, sem afhenti hana, Oddur Helgi Halldórsson framkvæmdastjóri er í miðjunni og systir hans Freydís til vinstri á myndinni. — Morgunblaðið/Kristján
Blikkrás varð 20 ára í gær, en fyrirtækið hóf starfsemi á Akureyri 2. janúar 1986. Blikkrás er rekið sem einkahlutafélag í eigu Odds Helga Halldórssonar og fjölskyldu hans.

Blikkrás varð 20 ára í gær, en fyrirtækið hóf starfsemi á Akureyri 2. janúar 1986. Blikkrás er rekið sem einkahlutafélag í eigu Odds Helga Halldórssonar og fjölskyldu hans.

Mikil reynsla er innan fyrirtækisins í allri blikksmíðavinnu, hvort sem er loftræstikerfi, klæðningar, þjónusta eða almenn blikksmíði.

Þó svo að Akureyri sé höfuðvígi Blikkrásar er einnig innan fyrirtækisins til staðar mikil reynsla við vinnu úti um land allt.

Blikkrás hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, m.a. frá jafnréttisnefnd Akureyrar árið 2001 og þá hlaut fyrirtækið viðurkenningu Lagnafélags Íslands árið 2003 fyrir lofsamlegt lagnaverk.

Þessara tímamóta mun verða minnst með margvíslegum hætti á árinu.

Oddur Helgi Halldórsson, löggiltur blikksmíðameistari og iðnrekstrarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri, er eigandi og framkvæmdastjóri Blikkrásar en þar starfa nú 12 manns.