VÉLSTJÓRAFÉLAG Íslands, Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins hafa gert nýjan kjarasamning um kjör vélstjóra á fiskiskipum. Kjarasamningurinn kemur í stað samnings aðilanna frá 2001 sem rennur út þann 31. desember 2005.

VÉLSTJÓRAFÉLAG Íslands, Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins hafa gert nýjan kjarasamning um kjör vélstjóra á fiskiskipum. Kjarasamningurinn kemur í stað samnings aðilanna frá 2001 sem rennur út þann 31. desember 2005. Gildistími er til 31. maí 2008.

Samkvæmt upplýsingum frá LÍÚ felur samningurinn í sér margvíslegar breytingar frá fyrri samningi en er í meginatriðum í samræmi við samninga útvegsmanna við önnur stéttarfélög sjómanna. Þó séu frávik, t.d. hvað varðar greiðslur vegna starfsaldurstengds orlofs, greiðslur í styrktar- og sjúkrasjóð og uppsagnarfrest, þannig að greitt er álag á hlut allra vélstjóra. Boðið er upp á tvær leiðir varðandi séreignarsparnað og greitt verður tímakaup vegna löndunar á uppsjávarfiski.

Samningurinn fer í póstatkvæðagreiðslu meðal starfandi vélstjóra á fiskiskipum og verða atkvæði talin miðvikudaginn 15. febrúar 2006.