Egilsstaðir | Sjálfstæðisflokkurinn á Fljótsdalshéraði verður með prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninganna 27. maí nk. Prófkjörið fer fram 4. og 5. febrúar. Framboðsfrestur rann út 16. desember.

Egilsstaðir | Sjálfstæðisflokkurinn á Fljótsdalshéraði verður með prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninganna 27. maí nk. Prófkjörið fer fram 4. og 5. febrúar. Framboðsfrestur rann út 16. desember. Framboð bárust frá 9 einstaklingum:

Soffíu Lárusdóttur, forstöðumanni Svæðisskrifstofu fatlaðra á Austurlandi og forseta bæjarstjórnar, sem gefur kost á sér í 1. sætið. Guðmundi Sveinssyni Kröyer, verkfræðingi og bæjarfulltrúa, Þráni Lárussyni, skólameistara á Hallormsstað og formanni Sjálfstæðisfélags Fljótsdalshéraðs, og Þórhalli Harðarsyni, rekstrarstjóra Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum, sem gefa kost á sér í 2. til 3. sæti. Fjólu Margréti Hrafnkelsdóttur fjármálastjóra og formanni ungra sjálfstæðismanna á Fljótsdalshéraði í 3. sæti, Guðmundi Ólafssyni, framkvæmdastjóra Barra, sem gefur kost á sér í 3. til 4. sæti. Degi Skírni Óðinssyni nema sem gefur kost á sér í 4. til 6. sæti. Pétri Fannari Gíslasyni nema sem gefur kost á sér í 6. sætið og Aðalsteini I. Jónssyni bónda sem tilgreinir ekkert sérstakt sæti en mun taka þar sæti á listanum sem hann raðast.

Formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Fljótsdalshéraði er Hrafnkell A. Jónsson.