Svæði fyrir lausa hunda | Eigendur hunda, 72 að tölu, hafa ritað nafn sitt á undirskriftalista þar sem þeir óska eftir afmörkuðu upplýstu svæði í Kjarnaskógi til að fara með hunda í lausagöngu.
Svæði fyrir lausa hunda | Eigendur hunda, 72 að tölu, hafa ritað nafn sitt á undirskriftalista þar sem þeir óska eftir afmörkuðu upplýstu svæði í Kjarnaskógi til að fara með hunda í lausagöngu. Erindið var tekið fyrir á fundi framkvæmdaráðs, þar sem tekið var jákvætt í það og framkvæmdadeild falið að skoða það betur í samráði við þá sem umsjón hafa með skóginum og leggja að því búnu fyrir ráðið á ný.