ACTAVIS er talið verða meðal annarra félaga sem berjast munu um írska samheitalyfjafyrirtækið Pinewood Laboratories en í Hálf fimm fréttum KB banka segir að samkvæmt erlendum heimildum sé söluferli á Pinewood komið langt á leið og búast megi við því að...
ACTAVIS er talið verða meðal annarra félaga sem berjast munu um írska samheitalyfjafyrirtækið
Pinewood Laboratories
en í
Hálf fimm
fréttum
KB banka segir að samkvæmt erlendum heimildum sé
söluferli
á Pinewood komið langt á leið og búast megi við því að lokatilboðum áhugasamra í félagið verði skilað inn fyrir
vikulok
. Önnur félög sem nefnd hafa verið í tengslum við söluferli Pinewood eru
Teva
og
Barr
. Actavis freistar þess nú að yfirtaka króatíska lyfjafélagið
Pliva
en Barr
berst einnig um það félag. Hagnaður Pinewood á síðasta ári nam 5,5 milljónum punda og jókst um
38%
frá árinu á undan, að því er fram kemur í
Hálf fimm fréttum
.