Leikvellir | Foreldrar og dagforeldrar á Syðri-Brekku hafa óskað eftir því að lagfæringar verði gerðar á Byggðavelli. Erindið var tekið fyrir á fundi framkvæmdaráðs sem fól framkvæmdadeild að verða við óskum um nauðsynlegar lagfæringar á leikvellinum.

Leikvellir | Foreldrar og dagforeldrar á Syðri-Brekku hafa óskað eftir því að lagfæringar verði gerðar á Byggðavelli. Erindið var tekið fyrir á fundi framkvæmdaráðs sem fól framkvæmdadeild að verða við óskum um nauðsynlegar lagfæringar á leikvellinum. Áætlanir gera svo ráð fyrir að gagngerar endurbætur á leikvellinum verði gerðar á næsta ári, 2007. Ekki var tekin ákvörðun um hvort sett verði upp hreinlætisaðstaða á svæðinu að svo komnu máli.

Þá var á sama fundi framkvæmdaráðs lagður fram undirskriftalisti íbúa við Borgar- Búða og Brekkusíðu sem óska eftir því að gerður verði leikvöllur á grænu svæði sunnan Búðasíðu. Því erindi var vísað til umhverfisráðs.