Sveinn Rúnar Hauksson
Sveinn Rúnar Hauksson
Eftir Svein Rúnar Hauksson: "Stöðvið stríðsglæpina, Ísraelsher burt úr Palestínu, viðurkennum sjálfsákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar, niður með múrinn, alþjóðlega vernd fyrir íbúa herteknu svæðanna."

Fréttirnar sem berast þessa dagana af innrás og endurhernámi Gazastrandarinnar eru óhugnanlegar. Einn öflugasti her heims ræðst með loftárásum, eldflauga- og stórskotahríð úr lofti, af landi og sjó, með skriðdrekum og fullkomnustu vopnum og njósnatækjum gegn lögreglu og öryggissveitum sem ráða yfir fábreyttum handvopnum og uppreisnarhópum sem beita Qassam heimasmíðuðum eldflaugum, sem líkjast rakettum í samanburði við háþróaðar stýriflaugar Ísraelshers. Árásir hersins bitna þó fyrst og fremst á óbreyttum og óvopnuðum borgurum, jafnt börnum sem fullorðnum, fólki sem býr innilokað við sult og seyru á þéttbýlasta svæði veraldar.

Síðustu fjóra daga, frá 5.-9. júlí, hefur Ísraelsher drepið 44 Palestínumenn, flestir þeirra eru óbreyttir borgarar. Að auki hafa 115 verið særðir, þar á meðal fjöldi kvenna og helmingurinn er börn. Í upphafi innrásarinnar var orkuver sprengt í loft upp sem rændi helming íbúa Gazastrandar eða 700 þúsund manns öllu rafmagni. Auk þessa hafa vatnsleiðslur og skólpræsi verið eyðilögð í árásunum.

Ísraelski hermaðurinn tylliástæða

Í áróðri Ísraelsstjórnar er innrásin á Gaza gerð undir því yfirskini að frelsa eigi úr haldi ísraelskan hermann og hins vegar að hindra andspyrnuhópa gegn hernáminu í að skjóta hinum heimatilbúnu Qassam-eldflaugum. Flaugarnar valda skelfingu meðal íbúanna í nærliggjandi ísraelskum bæjum þar sem þær lenda, sem er nógu slæmt, en valda lítilli eyðileggingu og sem betur fer sjaldan manntjóni.

Innrás Ísraelshers og endurhernám Gazastrandarinnar eru hernaðaraðgerð sem gefið hefur verið nafnið Sumar-rigningar (Operation Summer Rains) og hefur lítið sem ekkert að gera með að ísraelskur hermaður var fangaður af andspyrnuhópi. Það er einungis tylliástæða til að hefja hernaðaraðgerð sem er fyrir löngu skipulögð og ákveðin. Markmið hennar er ekki að frelsa hinn 19 ára Shilat. Þvert á móti er augljóst að hernaðurinn stefnir lífi hans í hættu. Það er kaldranalegt að fylgjast með því hvernig vestrænir fjölmiðlar dansa eftir hljóðpípu Ísraelsstjórnar, samanber alla þá athygli sem þessi eini hermaður úr ísraelska hernámsliðinu fær miðað við þá þögn sem ríkt hefur um meira en 9.800 - níu þúsund og átta hundruð Palestínumenn, karla, konur og börn sem Ísraelsher hefur rænt úr heimkynnum sínum og lokað inni í ísraelskum fangelsum, oft án dóms og laga. Amnesty International og mannréttindasamtök í Ísrael og Palestínu hafa hvað eftir annað reynt að vekja athygli á því hvernig fjölmargir þessara einstaklinga hafa mátt sæta pyntingum.

Brjóta innri byggingu palestínsks samfélags

Árásir Ísraelshers þessa dagana eru ekkert annað en aukning á árásum sem hefur ekki linnt árum saman. Svipuð aukning átti sér stað í lok mars og byrjun apríl 2002 þegar Ísraelsher gerði innrás í helstu borgir á Vesturbakkanum, Hebron, Betlehem, Ramallah, Nablus, Jenin og fleiri bæi.

Eftir því var tekið í Ramallah að byrjað var á því að ráðast á Hagstofuna og eyðileggja tölvur og gagnagrunn yfirvalda. Bókasöfn, sjúkrahús, bankar, skólar og stjórnarbyggingar urðu fyrir árásum. Markmið var að brjóta niður innri byggingu palestínsks samfélags. Markmiðið er það sama nú, að ráðast gegn palestínsku samfélagi og eyðileggja möguleika á að byggja upp frjálsa og sjálfstæða Palestínu. Lýðræðislega kjörnum þingmönnum og ráðherrum hefur verið rænt af hernámsliðinu, loftárásir gerðar á stjórnarbyggingar, þar á meðal á skrifstofu forsætisráðherra Palestínu.

Árásir á óbreytta borgara - stríðsglæpir

Einni og hálfri milljón manna hefur verið haldið eins og dýrum í búri inni á Gazasvæðinu. Þar hefst fólkið við í sárustu neyð, atvinnuleysi og fátækt, með lítið og mengað vatn, skort á öllum sviðum og yfirvofandi loftárásir hvenær sem hernámsliðinu dettur í hug. Ísraelsher ástundar hreina hryðjuverkastarfsemi sem sýnir sig meðal annars með hávaðasprengjum er valda ærandi og óþolandi hávaða. Þessi sálfræðihernaður skellur fyrirvaralaust á, gjarnan að nóttu til eða eldsnemma morguns og skelfir fólk og þá ekki síst börnin, þannig að þau eru í þúsundatali farin að pissa aftur á sig, börn sem annars eru löngu vaxin upp úr slíku.

Það getur enginn búið við slíkar hremmingar endalaust. Til þess er leikurinn gerður að Palestínumenn gefist upp og flýi land. Það er þá engin önnur leið en til Egyptalands, nema þá í sjóinn. Ef Ísraelsstjórn kemst upp með þetta glæpsamlega framferði sitt hefur aðferðin verið prófuð sem líka verður notuð og er verið að nota á Vesturbakkanum. Niðurstaðan verður þjóðernishreinsun, þegar palestínska þjóðin hrekst burt af sínu landi. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur fjallað um síðustu atburði á Gaza og nú hefur jafnvel hinn ofurvarkári Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, fordæmt framferði Ísraelshers. Níðingsverkin gagnvart varnarlausum íbúum á Gaza, sem Ísraelsstjórn ber ábyrgð gagnvart, en sigar þess í stað hernum á, eru stríðsglæpir samkvæmt alþjóðalögum.

Eiga kosningaúrslit ekki að gilda?

Ísraelstjórn hefur komist upp með framferði sitt með tilstuðningi Bandaríkjaþings og stjórnarinnar í Washington. Henni hefur tekist að herða stríðsrekstur sinn gagnvart palestínsku þjóðinni eftir að Hamas-samtökin unnu þingkosningar á herteknu svæðunum í janúar sl. Evrópusambandið og fleiri vestræn ríki, þar á meðal Noregur, hoppuðu á stríðsvagn Ísraelsstjórnar vegna óánægju með kosningaúrslitin í Palestínu. Refsa skyldi palestínsku þjóðinni fyrir að kjósa ekki rétt, með því að stöðva fjárframlög til stjórnarinnar. Stöðvun fjárframlaga til stjórnvalda á herteknu svæði, þar sem hernámsveldið innheimtir skattana og stingur þeim í eigin vasa, hefur í för með sér að ekki er hægt að greiða opinberum starfsmönnum laun, hvorki sjúkrahússtarfsfólki, kennurum né lögreglu, svo eitthvað sé nefnt. Samfélagið lamast fljótlega. Minnt skal á að kosningarnar í Palestínu voru frjálsar og lýðræðislegar og að mati Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseta, fóru þessar kosningar hvað best fram af öllum þeim kosningum í um 90 tilvikum sem stofnun hans hefur fylgst með.

Kosningúrslitin hafa í engu breytt stefnu Ísraelsstjórnar. Fyrir henni er það sama hvort Hamas er við völd, Yasser Arafat eða jafnvel þeirra óskamaður Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sem Arafat gerði á sínum tíma að forsætisráðherra að kröfu Bandaríkjanna og Ísraelsstjórnar. Sharon neitaði að ræða við Arafat og látið var í veðri vaka að hann væri hindrun í vegi friðarsamninga. En þegar Abbas tók við þá breyttist ekkert. Brottflutningurinn frá Gaza var einhliða aðgerð og boðað hafði verið að landamærin á Vesturbakkanum yrðu ákveðin einhliða af Ísraelsstjórn, rétt eins og bygging Apartheid-múrsins heldur áfram án tillits til alþjóðalaga, ályktana Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðadómstólsins í Haag.

Niður með múrinn stöðvið stríðsglæpina

Sunnudaginn 9. júlí voru 2 ár liðin síðan upp var kveðinn úrskurður í Haag um ólögmæti múrsins, skyldu Ísraelsstjórnar til að brjóta hann og fjarlægja og bæta íbúunum það tjón sem hann hefur valdið. Það var líka kveðið á um skyldu annarra þjóða til að fylgja því eftir að Ísraelsríki hlítti úrskurðinum. Sú skylda nær líka til Íslands. En sem fyrri daginn lætur Ísraelsstjórn eins og hún sé hafin yfir lög og rétt. Þetta ríki sem enn hefur ekki viljað skilgreina sín landamæri, krefst þess þó að vera viðurkennt af stjórnvöldum sem það viðurkennir ekki sjálft og beitir her sínum til að gjöreyða. Það er eins og ríki heims séu búin að missa allan vilja eða getu til að sannfæra þessa ágætu þjóð um að nauðsyn sé á, að við höfum öll ein lög.

Áköll berast til umheimsins frá mannréttindasamtökum, ísraelskum og palestínskum friðarsamtökum, kirkjufélögum og fleirum um að allir sem ekki geta látið sér á sama standa um örlög stríðshrjáðs fólks á Gaza og Vesturbakkanum sem búið hefur við hernám í meira en 39 ár, mótmæli af öllum kröftum framferði Ísraelshers.

Kröfurnar eru: Stöðvið stríðsglæpina, Ísraelsher burt úr Palestínu, viðurkennum sjálfsákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar, niður með múrinn, alþjóðlega vernd fyrir íbúa herteknu svæðanna. Boðað er til útifundar á Austurvelli, fimmtudaginn 13. júlí kl. 17.30.

Höfundur er læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína.

Höf.: Svein Rúnar Hauksson