ÁSTHILDUR Helgadóttir, leikmaður hjá Malmö FF í Svíþjóð, heldur áfram að skora fyrir félagið. Um helgina lék Malmö við Qbik í Karlstad og sigraði 3:0.

ÁSTHILDUR Helgadóttir, leikmaður hjá Malmö FF í Svíþjóð, heldur áfram að skora fyrir félagið. Um helgina lék Malmö við Qbik í Karlstad og sigraði 3:0. Ásthildur gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö af mörkunum þremur og hefur nú gert 12 mörk í deildinni og er markahæst ásamt brasilísku konunni Mörtu sem leikur með Umeå, en liðið varð meistari í fyrra.

Malmö er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 23 stig en tólf umferðir eru búnar. Meistarar Umeå eru í efsta sæti með 31 stig og eiga auk þess leik til góða á Malmö.

Erla Steina Arnardóttir og lið hennar Malbacken tapaði 3:0 fyrir Linköping og er neðst í deildinni með sex stig.