Reykjavík
Innipúkinn á NasaAð vanda verður fjöldi hljómsveita á Innipúkanum, 4., 5. og 6. ágúst, en hátíðin er nú haldin í fimmta sinn. Hefjast tónleikarnir alla dagana kl. 18. Meðal þeirra sem fram koma eru Televison, Throwing Muses, Mugison, Ampop, Jeff Who, Speaker Bite Me, Solex og Jomi Massage.
20 ára aldurstakmark er á hátíðina og kostar 2.800 kr á staka daga en 6.300 á alla hátíðardagana.
Sveitaball á mölinni
Hljómsveitirnar Brimkló og Papar bjóða til Sveitaballs á mölinni á skemmtistaðnum Players, 5.og 6. ágúst.
Suður- og Vesturland
Fjölskylduhátíð í GaltalækÁ Bindindismótinu koma meðal annars fram Stuðmenn ásamt Birgittu Haukdal, Valgeiri Guðjóns og Stefáni Karli, Skímó og Paparnir. Hljómsveitin Sumargleðin kemur saman á ný í þetta eina skipti, en hana skipa gleðipinnarnir Raggi Bjarna, Hemmi Gunn, Ómar Ragnarsson, Þorgeir Ástvaldsson og Maggi Prins Póló. Einnig má nefna Idol-hljómsveitina Ízafold, Snorra, Ingó og Bríet Sunnu úr Idolinu.
Flugeldasýning og varðeldur verður að vanda og er hátíðin vímulaus.
Flughátíð, Múlakoti
Flugáhugamenn munu hittast í Múlakoti. Meðal annars verður haldin lendingakeppni.
Flúðir
Á Flúðum verður meðal annars hægt að fylgjast með árlegri traktorstorfæru og furðufatakeppni.
Kirkjubæjarklaustur
Haldin verður hátíðarbrenna með tónlist og söng á sunnudeginum. hljómsveitin Oxford spilar fyrir gesti og er aldurstakmark 16 ár á ball sunnudagsins.
Kotmót, Kirkjulækjarkoti
Kristilegt fjölskyldumót verður í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Meðal dagskrárliða eru tónleikar Gospelkórs Hvítasunnukirkjunnar, barnamót, varðeldur og ýmsar hljómsveitir sem koma fram. Ræðumaður mótsins er Gary Wilkerson. Allir eru velkomnir á hátíðina en þess má geta að Hvítasunnuhreyfingin á Íslandi fagnar í ár 85 ára afmæli.
Sólheimar, Menningardagskrá
Sólheimar halda Menningarveislu í allt sumar. Um verslunarmannahelgina syngur Sólveig Samúelsdóttir messósópran á laugardag. Á sunnudag verður Hrafnhildur Schram með leiðsögn um höggmyndagarð Sólheima. Aðgangur að öllum viðburðum er ókeypis.
Sæludagar í Vatnaskógi
KFUM og K halda fjölskylduhátíð í Vatnaskógi. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá þar sem bæði börn, unglingar og fullorðnir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal skemmtikrafta má nefna KK og Ellen, Jón Víðis töframann og hljómsveitina Aiz-you. Meðal dagskrárliða er söngvakeppni barna, kassabílaarall og hinir árlegu sæludagaleikar.
Úlfljótsvatn
Bandalag íslenskra skáta og Skátasamnband Reykjavíkur hafa opið tjaldstæði á Úlfljótsvatni en engar skipulagðar uppákomur. Ýmis afþreying er í boði á staðnum, s.s. bátaleiga, klifurturn og ýmis leiktæki.
Þjóðhátíð í Eyjum
Meðal hljómsveita sem skemmta á Þjóðhátíð eru Todmobile, Á móti sól, Stuðmenn, Í svörtum fötum og Jet Black Joe. Einnig koma fram hljómsveitirnar Hálft í hvoru og Dans á rósum.
Brúðubíllinn skemmtir yngstu gestunum, og Leikfélag Vestmannaeyja með atriði. Brennan, flugeldasýningin og brekkusöngurinn eru á sínum stað og mundar Árni Johnsen gítarinn af alkunnri snilld. Þess má geta að brekkusöngurinn fagnar 30 ára afmæli. Aðgangur að hátíðinni kostar 8.500 í forsölu á bensínstöðvum Essó um land allt.
Norðurland
Ein með öllu, AkureyriSálin hans Jóns míns, Skímó, Greifarnir og Land og synir verða meðal þeirra sem leika á Akureyri um verslunarmannahelgina. Þá heldur Páll Óskar uppi fjörinu á unglingadansleik hátíðarinnar. Fjölbreytt skemmtiatriði eru í boði og Tívolí-UK verður með leiktæki. Lokahátíð er á Akureyrarvelli þar sem sungið verður við varðeld og flugeldum skotið á loft. Öll dagskrá á miðbæjartorgi og íþróttavelli bæjarins er ókeypis.
Síldarævintýri á Siglufirði
Boðið er upp á úrval afþreyingar á Siglufirði. Haldinn verður dansleikur en gestir geta einnig heimsótt Síldarminjasafnið, sundlaug bæjarins og golfvöll.
Unglingalandsmót UMFÍ
Unglingalandsmótið er haldið að Laugum í Þingeyjarsveit. Von, Ína Valgerður og hljómsveit, Oxford, Uppþot og Ultra Mega Technobandið Stefán skemmta á kvöldvökum. Leiktæki eru fyrir yngstu kynslóðina.
Austurland
Álfaborgarséns, Borgarfirði eystraNeistaflug á Neskaupstað
Meðal skemmtikrafta sem fram koma á Neistaflugi eru Gunni og Felix, Birta og Bárður úr Stundinni okkar og Laddi, sem skemmtir við varðeldinn á sunnudagskvöld.
Í Egilsbúð verður á föstudag "Queen-show" til minningar um Freddie Mercury. Í svörtum fötum koma fram, og Páll Óskar þeytir skífum. Á laugardagskvöld er útidansleikur með Skítamóral og á Sunnudag tónleikar með Sálinni hans Jóns míns.
Álfaborgarséns
Dagskrá Álfaborgarséns 2006 hefur ekki endanlega verið ákveðin en reiknað er ýmsum útivistarviðburðum, svo sem knattspyrnumóti, Neshlaupi og grillkvöldi: Þá verður dansleikur í Fjarðarborg á laugardeginum þar sem Danshljómsveit Friðjóns leikur fyrir dansi.