OLGA Færseth skoraði tvívegis er KR bar sigurorð af Stjörnunni 3:1 í Landsbankadeild kvenna á KR-vellinum í gærkvöldi.

OLGA Færseth skoraði tvívegis er KR bar sigurorð af Stjörnunni 3:1 í Landsbankadeild kvenna á KR-vellinum í gærkvöldi. Með þessum sigri eru KR stúlkur komnar með 18 stig eftir níu umferðir og eru aðeins þremur stigum á eftir Breiðabliki sem er í öðru sætinu. Valur hefur hins vegar fullt hús stiga, eða 24 eftir átta leiki.

KR hafði 2:0 yfir í hálfleik gegn Stjörnunni með mörkum frá Hólmfríði Magnúsdóttur á 7. mínútu og Olgu á 17. mínútu. Olga bætti öðru marki við á 54. mínútu áður en Björk Gunnarsdóttir náði að svara fyrir Stjörnuna í uppbótartíma. KR-liðið hefur sótt mjög í sig veðrið að undanförnu og hefur nú unnið fjóra leiki í röð, en liðið lagði til að mynda Breiðablik að velli á dögunum. Stjarnan er hins vegar í fjórða sæti með fimmtán stig en Keflavík getur náð þeim að stigum með sigri á Breiðablik í dag.