RÁN var framið í verslun í Þingholtunum á níunda tímanum á sunnudagskvöld meðan á úrslitaleik Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu stóð. Ræninginn ógnaði afgreiðslufólki með sprautunál og hafði lága fjárhæð upp úr krafsinu og tvo sígarettupakka.

Lögregla leitar mannsins sem er um 25 ára gamall, 170 cm á hæð, grannvaxinn og kinnfiskasoginn með stutt músarbrúnt hár og blá augu. Hann var í svörtum leðurjakka og bláum gallbuxum og með eyrnalokk í öðru eyra.

Lögreglan biður þá sem kannast við lýsingu á manninum að hafa samband.