KÓR Grafarvogskirkju fór í söngferð til Finnlands og Eistlands dagana 9.- 15. júní sl. Með í för voru söngstjórinn Hörður Bragason, sr. Vigfús Þór Árnason sóknarprestur, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir og ýmsir fylgifiskar.

Hápunktur fararinnar var að syngja við finnska guðsþjónustu í Klettakirkjunni sem er fræg kirkja í Helsinki. Kirkjan er sprengd inn í bjarg þannig að veggir kirkjunnar eru berir klettar. Séð utan frá minnir kirkjan helst á fljúgandi disk sem sett hefur sig niður í miðri borginni. Kirkja þessi dregur að sér ferðamenn víðs vegar úr heiminum. Kórinn söng íslenska sálma, þar af einn eftir kórstjórann Hörð Bragason og einn finnskan sálm. Ekki skildu kórfélagar mikið í boðskap predikunarinnar þennan sunnudaginn.

Eftir messuna var boðið í kaffi og síðan söng kórinn klukkustundarlanga dagskrá fyrir gesti og gangandi. Gerður var góður rómur að söngnum.

Tónleikaferð þessi tókst í alla staði vel. Markverðir staðir voru skoðaðir á milli þess sem raddbönd voru þanin. Ekki sakaði að veðurguðir voru í sínu blíðasta skapi.