Gatnagerð | Tvö tilboð bárust í verkefni við gatnagerð í Hrísey. Lægra tilboðið var frá Vinnuvélum Símonar Skarphéðinssonar ehf., rúmlega 30,1 milljón króna, hitt frá Steypustöð Dalvíkur ehf., 37,2 milljónir króna.
Gatnagerð | Tvö tilboð bárust í verkefni við gatnagerð í Hrísey. Lægra tilboðið var frá Vinnuvélum Símonar Skarphéðinssonar ehf., rúmlega 30,1 milljón króna, hitt frá Steypustöð Dalvíkur ehf., 37,2 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hönnuða var upp á tæpar 30,2 milljónir.
Framkvæmdaráð hefur samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Viðbótarkostnaði miðað við fjárhagsáætlun var vísað til endurskoðunar framkvæmdaáætlunar.