Laufskálaleiðin Leið brottfararfarþega úr innrituninni á 1. hæð liggur upp þessa stiga og til hægri þar sem er búnaður til vopnaleitar.
Laufskálaleiðin Leið brottfararfarþega úr innrituninni á 1. hæð liggur upp þessa stiga og til hægri þar sem er búnaður til vopnaleitar. — Morgunblaðið/Jóhann Magnús
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Staðið er í ströngu við umbyltingu flugstöðvar Leifs Eiríkssonar um þessar mundir. Sjón er sögu ríkari og Jóhann Magnús Jóhannsson leit á framkvæmdirnar í fylgd Höskuldar Ásgeirssonar, forstjóra flugstöðvarinnar.

VINNA stendur nú yfir við stækkun og breytingar á flugstöð Leifs Eiríkssonar og er markmiðið með framkvæmdunum að bregðast við spám um öra fjölgun farþega á ferð um Keflavíkurflugvöll.

"Við búumst við mikilli fjölgun farþega á næstu árum og það hefði ekki mátt tæpara standa að hefja framkvæmdir úr því að framkvæmdir og farþegar urðu hvor tveggja að rúmast í flugstöðinni," segir Höskuldur.

Hátt í tvær milljónir farþega fóru í gegnum flugvöllinn í fyrra og er áætlað að farþegafjöldinn nái 3,2 milljónum árið 2015. Framkvæmdirnar hófust árið 2003 og að þeim loknum, árið 2007, mun byggingin hafa stækkað úr 22.000 fermetrum í 38.500.

Þjónustunni haldið í horfi

"Við erum að endurgera og endurskipuleggja norðurbygginguna frá grunni. Við höfum reynt að halda þjónustu við farþega í horfi á meðan framkvæmdirnar hafa staðið yfir. Það hefur verið heilmikið púsluspil og það hefur kallað á þó nokkrar tilfæringar og hrókeringar," að sögn Höskuldar.

Leið brottfararfarþega úr innritun og í vopnaleit er gott dæmi um hvernig aðstaða hefur verið færð til bráðabirgða meðan framkvæmdum miðar áfram. Áður en framkvæmdir hófust var vopnaleitin til vinstri við innritunina í norðurenda, hún var síðan flutt hinum megin við innritunina í suðurenda. Vopnaleitin var í byrjun sumars opnuð á annarri hæð byggingarinnar og gengu þá brottfararfarþegar upp stigagang eða tóku lyftu. Endanleg leið fyrir brottfararfarþega hefur nú verið tekin í gagnið og fara farþegar nú upp í rúllustiga eða stiga í Laufskálanum.

Laufskálinn er glerhýsi þar sem áður var kaffitería og reykaðstaða. Vopnaleitin hefur verið aðskilin frá innrituninni og liggur Laufskálaleiðin svokallaða upp á 2. hæð þar sem beygt er til hægri að vopnaleitinni.

Vopnaleitarhliðin eru fimm talsins og pláss er fyrir eitt hlið í viðbót eins og staðan er núna. Ætlunin er að tengja Laufskálann við glerbygginguna sem liggur utan á norðvesturhorni byggingarinnar. Með því að færa gönguleiðina þangað komast tvö vopnaleitarhlið til viðbótar fyrir og þá er pláss fyrir átta hlið.

Fjöldi nýrra verslana

Flutningur vopnaleitar upp á 2. hæð er liður í fyrri áfanga framkvæmdanna ásamt stækkun vesturhluta 2. hæðar norðurbyggingar til suðurs. Í seinni áfanganum verða breytingar gerðar á austurhluta 2. hæðar og lokið við að stækka flugstöðina til suðurs, vinna við þann áfanga hefst ekki fyrr en í haust enda háannatími genginn í garð í flugstöðinni. Flugstöðinni hefur verið skipt í tvennt, í austurhluta og vesturhluta, meðan á framkvæmdum hefur staðið og að þeim loknum mun flugstöðin hafa verið stækkuð um 42 metra til suðurs.

Fyrri áfanganum lýkur á næstunni þegar veggir þeir sem skilja að núverandi rými fyrir brottfararfarþega og stækkunina verða teknir niður. Í því rými munu Epal, Rammagerðin, 66° Norður, 10-11 og Saga Boutique opna nýjar verslanir. Auk þess sem Kaffitár mun opna kaffibar á svæðinu. Þá verður komin því sem næsta endanleg mynd á vesturhlutann og mögulegt verður að sjá muninn á nýja tímanum og gamla tímanum á 2. hæðinni. Alls verða opnaðar 10-12 verslanir á svæðinu og munu þær halda áfram að bætast við til vorsins 2007.

Aukin afkastageta

Höskuldur er nýkominn frá Þýskalandi þar sem hann var að ganga frá samningum um kaup á farangursflokkunar- og gegnumlýsingarkerfi.

"Nú er það þannig að töskur farþega á leið úr landi eru flokkaðar handvirkt, þetta kerfi notar hins vegar strikamerki og flokkunin er öll tölvustýrð. Það býður upp á aukið öryggi auk aukinna afkasta. Afkastageta þessa kerfis, sem einnig gegnumlýsir farangur, er rúmlega þrjú þúsund töskur á klukkustund. Þegar það verður tekið í notkun má segja að straumhvörf verði í farangursmeðhöndlun í flugstöðinni," að sögn Höskuldar. Kerfið verður staðsett á 1. hæð í vesturhluta viðbyggingar þeirrar sem er að rísa í suðurenda norðurbyggingar.

Leið komufarþega mun að framkvæmdum loknum liggja austan við farangursflokkunarkerfið niður stiga og rúllustiga í líkingu við þá sem nú hafa verið settir upp fyrir brottfararfarþega í Laufskálanum, þar verða fyrir þrjú farangursfæribönd, þó ekki þau sömu og nú eru í notkun.

"Það verða ekki fleiri færibönd fyrir farangur í nýja komusalnum, en heildarlengd þeirra verður þrefalt lengri en þeirra sem nú eru í notkun. Jafnframt verður rými til stækkunar þeirra," segir Höskuldur.

Ný fríhafnarverslun verður staðsett þar sem farangursfæriböndin eru nú og þar á bak við en þar er núverandi farangursflokkunar- og gegnumlýsingarkerfi. Stiginn sem komufarþegar fara niður nú til að komast í fríhafnarverslunina á 1. hæð og að farangursfæriböndum verður rifinn.

Tollurinn á sama stað

Tollurinn verður ekki fluttur úr stað eins og svo margt annað heldur verður hann gegnt hinni nýju fríhafnarverslun á 1. hæð. Eftir að gengið er í gegnum tollinn blasir við verslun 10-11 sem opnaði í vikunni sem leið. Auk blómvanda er meðal annars hægt að fá bakkelsi og eitthvað að drekka með í versluninni sem er væntanlega mikil bragarbót fyrir þá sem eru snemma á ferðinni að sækja vini og vandamenn eða þurfa að bíða eftir farþegum úr flugi sem hefur seinkað.

Fleira nýtt er á svæðinu eftir að komið er í gegnum tollinn, í apríl sl. var opnuð ný aðstaða fyrir bílaleigufyrirtæki til vinstri eftir að komið er úr tollinum, þar er að finna útibú Hertz, National, Alamo, Avis, Budget, Europcar og bílaleiga Akureyrar. Auk þess sem Landsbankinn hefur opnað þar útibú með áherslu á gjaldeyrisviðskipti.

Í vetur var byggt yfir gönguleið þeirra sem leggja á langtímabílastæðum auk þess sem vísir að slíku skýli hefur verið reistur fyrir þá sem leggja á skammtímastæðum komufarþegamegin.

Ný starfsmannaaðstaða

Skrifstofu- og starfsmannaaðstaða hefur ekki farið varhluta af breytingunum sem gerðar hafa verið á flugstöðinni. Um þriðjungur rýmis á 2. hæð byggingarinnar var lagður undir þessa aðstöðu áður, en eftir breytingarnar er stefnt að því að öll 2. hæðin muni nýtast fyrir verslun og þjónustu við farþega. Því þurfti að finna skrifstofum og starfsmannaaðstöðu annað heimili.

Skrifstofur flugstöðvarinnar voru fluttar upp á 3. hæð sl. vor en geymsluris var áður á hæðinni. Nú er þar fjögur þúsund fermetra skrifstofu- og starfsmannaaðstaða, rýmið er tvískipt að hluta og gengt á milli um brú. Aðstaðan á 3. hæðinni var tekin í notkun eftir að öll loftræstikerfi og önnur tækni hafði verið endurnýjuð. Geymslan verður flutt í kjallara viðbyggingarinnar í suðurenda norðurbyggingarinnar.

Ístak hf. er aðalverktaki þessara framkvæmda og verkfræðistofan VSÓ stýrir verkefninu. Heiðurinn af hönnun breytinganna eiga Teiknistofa Garðars Halldórssonar og VA arkitektar.

johaj@mbl.is

Höf.: johaj@mbl.is