Námskeið | Í þessari viku hefjast hin sívinsælu örnámskeið Árbæjarsafns. Námskeiðin eru ætluð börnum í fylgd með fullorðnum og eru í um þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 13 til um 16.
Námskeið | Í þessari viku hefjast hin sívinsælu örnámskeið Árbæjarsafns. Námskeiðin eru ætluð börnum í fylgd með fullorðnum og eru í um þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 13 til um 16. Á örnámskeiðum Árbæjarsafns gefst meðal annars færi á að læra tálgun, glímu, þæfingu ullar og flugdrekagerð. Sætaframboð í hverju námskeiði er takmarkað. Frekari upplýsingar og skráning í síma 4116320.