ÁTAKSHÓPUR öryrkja efnir til fundar þriðjudaginn 16. janúar í Félagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12 að sunnanverðu. Hefst fundurinn kl. 20.

ÁTAKSHÓPUR öryrkja efnir til fundar þriðjudaginn 16. janúar í Félagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12 að sunnanverðu. Hefst fundurinn kl. 20.

Efni fundarins verður samstarf átakshópsins við framboðshóp aldraðra um framboð til Alþingis vegna kosninga í vor, segir í fréttatilkynningu. Frummælandi verður Arnþór Helgason, fyrrum formaður og framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands. Fundarstjóri verður Arnór Pétursson, fyrrum formaður Sjálfsbjargar, landsamtaka fatlaðra.

Á fundinn koma gestir frá framboðshópi aldraðra.