Reykjavíkurmótið. Norður &spade;972 &heart;K10 ⋄KG1073 &klubs;763 Vestur Austur &spade;ÁD53 &spade;-- &heart;ÁD76 &heart;G8542 ⋄65 ⋄D984 &klubs;D104 &klubs;9852 Suður &spade;KG10864 &heart;93 ⋄Á2 &klubs;ÁKG Suður spilar 4&spade;.

Reykjavíkurmótið.

Norður
972
K10
KG1073
763

Vestur Austur
ÁD53 --
ÁD76 G8542
65 D984
D104 9852

Suður
KG10864
93
Á2
ÁKG

Suður spilar 4.

Vestur er með fín varnarspil gegn fjórum spöðum, en auðvelda útkomu á hann ekki – lauf frá D10x virðist skást, en það útspil snargefur samninginn. Spilið er frá 5. umferð Reykjavíkurmótsins um helgina og mjög víða kom út lauf upp í gaffalinn. Sverrir Þórisson leysti vandann fagmannlega eftir sagnirnar "einn, tveir og fjórir spaðar". Sverrir lagði einfaldlega niður spaðaásinn til að kíkja á blindan og fá viðbrögð frá makker. Björn Friðriksson í austur vísaði laufinu kröftuglega frá og Sverrir skipti þá yfir í hjarta. Sagnhafi sótti trompið og rúllaði spöðunum í botn, en allt kom fyrir ekki og Sverrir fékk á endanum fjórða varnarslaginn á laufdrottningu.