ÁKVEÐIÐ hefur verið að veita styrk úr Sagnfræðisjóði dr. Björns Þorsteinssonar fyrir árið 2007, 400.000 kr.

ÁKVEÐIÐ hefur verið að veita styrk úr Sagnfræðisjóði dr. Björns Þorsteinssonar fyrir árið 2007, 400.000 kr.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja með fjárframlögum stúdenta við nám undir kandídatspróf í sagnfræði og kandídata í sömu grein til að rannsaka – og vinna að ritum um – sérstök verkefni er varða sögu Íslands eða efni því nátengt.

Umsóknum ber að skila til hugvísindadeildar Háskóla Íslands í Nýja Garði, eigi síðar en 10. mars nk.