Stella McCartney Litríkt, líflegt og unglegt.
Stella McCartney Litríkt, líflegt og unglegt. — Reuters
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
París er samnefnari smekklegheita og á tískuviku í borginni eru saman komnar margar af stællegustu konum heims. Inga Rún Sigurðardóttir kannaði nýjustu tískustraumana.

Á tískuviku í París sýna allt frá framúrstefnulegustu hönnuðum yfir í þekktustu og virtustu tískuhús heimsins. Breiddin er mikil og sömuleiðis fagmennskan. Í vikunni var verið að sýna vetrartískuna 2007–8 en tískuviku borgarinnar lýkur í dag.

Engar buxur hjá Dior

Bretinn John Galliano var við sama heygarðshornið hjá Christian Dior og á síðustu hátískusýningu. Fötin voru mjög í anda Dior sjálfs og ekki einar einustu buxur í allri línunni. Innblásturinn í hátískufötum sumarsins var frá Madama Butterfly og sáust áhrifin einnig nú. Galliano var mjög litaglaður í þetta skiptið og líflegur. Áhrifin frá fimmta áratug síðustu aldar voru sterk og andi myndarinnar The Women í leikstjórn George Cukor frá árinu 1939 með Joan Crawford í einu aðalhlutverkanna.

Valentino í 45 ár

Áratugurinn var einnig áhrifavaldur í fatalínu Valentino og ekki síst kvikmyndastjörnur þess tíma. Fötin voru kvenleg og sýndi hann og sannaði af hverju hann hefur verið lengi í fremsta flokki. Þessi ítalski hönnuður sagði eftir sýninguna að það sem hann hefði ávallt í huga væri að láta konum finnast þær fallegar. Fegurð, fágun og glæsileiki eru einkunnarorð hans og einkennismerki rauðir síðkjólar. Innblásturinn kom frá annarri leikkonu en Crawford, nefnilega Lauren Bacall.

Til þess að fagna 45 ára starfsafmæli ætlar Valentino, sem er 74 ára, að sýna komandi vetrarhátískulínu sína í Róm, þar sem hann hóf ferilinn, frekar en í París. Hvað varðar breytingarnar sem hann hefur orðið vitni að í tískuheiminum á ferlinum segir hann: "Sumum tískubylgjum hef ég fylgt, öðrum ekki. Ég er mjög þrjóskur, ég er naut, þannig að ég geri nákvæmlega það sem mig langar til að gera."

Unga Stellu-stúlkan

Til marks um hvernig mismunandi tíska þrífst hlið við hlið var breski hönnuðurinn Stella McCartney í allt öðrum hugleiðingum. Föt hennar hæfa konum sem eru stællegar á annan hátt en Valentino-fylgjendur. Þær eru væntanlega líka yngri, kannski uppteknari og finnst mikilvægt að vera í þægilegum fötum. Nokkur einkenni klæðnaðarins eru stórir vasar, hettur og hlýjar kápur. Mikið af fötunum var í svörtum, gráum og ljósum litum en líka í sterkrauðum og -bleikum. Stellu-stúlkan þarf helst að vera leggjalöng því pilsin eru stutt og fötin gjarnan víð að ofan.

Hálandahöfðinginn Gaultier

Hálandastemningin réð ríkjum hjá franska hönnuðinum Jean Paul Gaultier. Fyrirsæturnar gengu taktföstum skrefum við sekkjarpíputónlist í stórum loðfeldum, ullarsjölum og gul- og rauðköflóttu efni. Þær voru með fjaðrir í hárinu eða einhvers konar hanakamb. Gaultier lýsti því yfir að hann hefði viljað innleiða ákveðna ættbálkastemningu í vetrartískuna og tókst vel upp með það.

ingarun@mbl.is