ÁSMUNDUR Gunnlaugsson jógakennari verður með fyrirlestur í Gerðubergi 8. mars nk. kl. 20 þar sem hann mun fjalla um streitu, kvíða og fælni frá ýmsum sjónarhornum.

ÁSMUNDUR Gunnlaugsson jógakennari verður með fyrirlestur í Gerðubergi 8. mars nk. kl. 20 þar sem hann mun fjalla um streitu, kvíða og fælni frá ýmsum sjónarhornum. Ásmundur mun auk þess miðla af persónulegri reynslu sinni af þessum kvillum og bjóða upp á spurningar í lok erindis (verð 1.500 kr.). Í framhaldi verður boðið upp á námskeiðið Jóga gegn kvíða á sama stað.

Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Jógaskólans, www.jogaskolinn.is.