[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Anna Nicole Smith var á laugardag lögð til hinstu hvílu í grafreit í Nassau á Bahamaeyjum við hlið sonar síns, sem lést fyrir skömmu.
Anna Nicole Smith var á laugardag lögð til hinstu hvílu í grafreit í Nassau á Bahamaeyjum við hlið sonar síns, sem lést fyrir skömmu.

Mikil viðhöfn var við útförina og fjöldi Bahamabúa fylgdist með þegar kistan, sveipuð bleiku teppi, var borin til og frá kirkju.

Við útförina voru m.a. tveir fyrrverandi kærastar Önnu, Howard K. Stern og Larry Birkhead , og móðir hennar, Virgie Arthur , en þau þrjú gera öll tilkall til forræðis yfir hálfsársgamalli dóttur Önnu, Dannielynn .

Arthur gerði á síðustu stundu tilraun til að fá hæstaréttardómara á Bahamaeyjum til að stöðva útförina og fela sér forræði yfir líkinu, sem hún vildi flytja til Texas. Beiðninni var hafnað.

Anna var grafin við hlið sonar síns, Daniels , sem lést í september, að því er talið er vegna lyfjaneyslu.

Fregnir herma að tveir geltir hafi gert sér dælt við Viktoríu Beckham þegar hún var að skoða skóla fyrir syni sína í Los Angeles.

Viktoría hefur undanfarið verið að skoða bestu einkaskólana í Hollywood til að skrá synina þrjá í þegar fjölskyldan flyst vestur um haf í sumar.

National Enquirer segir frá því að þegar Viktoría var að skoða einn skólann hafi tveir geltir farið að gera sér dælt við hana og hafi hún flúið af vettvangi skelfingu lostin.

"Viktoría var að skoða vísindakennslustofu þegar tvö vambsvín sem fá að ganga þar laus fóru að þefa af henni. Hún æpti: Fariði burt með þau! og reyndi að hlaupa í burtu á háu hælunum. Þetta var alveg drepfyndið, en allir reyndu að halda niðri í sér hlátrinum," hefur tímaritið eftir heimildamanni.

Sumir foreldrar barnanna í skólunum sem Viktoría hefur verið að skoða eru sagðir dauðskelkaðir vegna sjónvarpsmyndatökuliðsins og ljósmyndaranna sem fylgi Viktoríu hvert fótmál.

Heyrst hefur að Viktoríu lítist einna best á kaþólskan skóla í Bel Air.