DANSKUR björgunarbátur náði í íslenskan sjómann sem slasaðist á hendi á föstudagskvöld og flutti hann til læknis á Borgundarhólmi.

DANSKUR björgunarbátur náði í íslenskan sjómann sem slasaðist á hendi á föstudagskvöld og flutti hann til læknis á Borgundarhólmi.

Fram kemur að íslenski sjómaðurinn hafi verið um borð í þýskum togara, sem hafi verið of stór til að sigla til hafnar í Nexö. Maðurinn hafði misst fingur og brotið annan fingur þegar hann var að vinna við trollið um borð.