MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Heimdalli um kynjakvóta: Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hafnar öllum hugmyndum um að binda í lög eða stjórnarskrá kynjakvóta, hvort sem um er að ræða Alþingi,...

MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Heimdalli um kynjakvóta:

Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hafnar öllum hugmyndum um að binda í lög eða stjórnarskrá kynjakvóta, hvort sem um er að ræða Alþingi, stjórnmálaflokka, opinberar stofnanir eða stjórnir fyrirtækja á markaði. Á Íslandi eru bæði kynin jafnrétthá fyrir lögunum.