— Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÁRLEG þingmannaveisla var haldin á Hótel Sögu á föstudagskvöld þar sem iðkaður var sá siður að tala einungis í bundnu máli við gesti og var gerður góður rómur að mörgum kviðlingnum sem látinn var fjúka.

ÁRLEG þingmannaveisla var haldin á Hótel Sögu á föstudagskvöld þar sem iðkaður var sá siður að tala einungis í bundnu máli við gesti og var gerður góður rómur að mörgum kviðlingnum sem látinn var fjúka. Um er að ræða árshátíð þingmanna þar sem forseti Íslands og frú eru heiðursgestir. Tónlist var flutt og síðan stiginn dans.

Meðal þeirra sem mættu til gildis voru samfylkingarþingkonurnar Jóhanna Sigurðardóttir og Katrín Júlíusdóttir.