Skólahljómsveit Kópavogs heldur veglega afmælistónleika í Háskólabíói í dag kl. 14. Hinn 22. febrúar síðastliðinn varð hin síunga og fjöruga hljómsveit 40 ára.

Skólahljómsveit Kópavogs heldur veglega afmælistónleika í Háskólabíói í dag kl. 14.

Hinn 22. febrúar síðastliðinn varð hin síunga og fjöruga hljómsveit 40 ára. Hljómsveitin er ein af elstu skólalúðrasveitum landsins og hefur um tíðina starfað af miklum krafti og verið ein stærsta og virkasta skólahljómsveit landsins.