Retroþema er upplagt í fermingum og býður upp á endalausa möguleika þegar kemur að skreytingum. Fimmti, sjötti og sjöundi áratugurinn hafa svo sannarlega sinn sjarma og endalaust úrval af sterkum litum, hressum mynstrum og taumlausri gleði.
Retroþema er upplagt í fermingum og býður upp á endalausa möguleika þegar kemur að skreytingum. Fimmti, sjötti og sjöundi áratugurinn hafa svo sannarlega sinn sjarma og endalaust úrval af sterkum litum, hressum mynstrum og taumlausri gleði. Hér höfum við valið súkkulaðibrúnan og sterkbláan lit saman sem kemur svo sannarlega vel út. Sendum sköpunargleðina á flug, gefum bítlinum í okkur lausan tauminn og skemmtum okkur konunglega við að undirbúa retro-fermingu. Það er nánast öruggt að fermingarbarninu finnst fátt skemmtilegra en að hafa ferminguna í þessum stíl.