Farsæll Gervais er maðurinn á bak við hina vinsælu Extras-þætti.
Farsæll Gervais er maðurinn á bak við hina vinsælu Extras-þætti.
EFTIR að hafa tekið sér langan umhugsunarfrest hefur Ricky Gervais kveðið upp úr um framtíð hins vinsæla sjónvarpsþáttar "Extras".

EFTIR að hafa tekið sér langan umhugsunarfrest hefur Ricky Gervais kveðið upp úr um framtíð hins vinsæla sjónvarpsþáttar "Extras". Svo virðist sem þættirnir hafi ekki sungið sitt síðasta, en það er ekki þar með sagt að aðdáendur megi búast við heilli þáttaröð. Gervais er sagður ætla að enda Extras-þættaröðina á sama hátt og hann kvaddi hina feikivinsælu þáttaröð "The Office", þ.e. með sérstökum viðhafnarþætti sem verður í lengra lagi.

"Það er ekkert ákveðið um hvenær hafist verður handa við þáttinn eða hverjir munu koma þar fram," er haft eftir talsmanni Gervais á slúðurveitunni Ananova .