Sigurjón M. Egilsson
Sigurjón M. Egilsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
SVIPTINGARNAR á blaða- og tímaritamarkaðnum hafa verið miklar á undanförnum misserum en bera því eflaust vitni hvers lags grósku er þar að finna.
SVIPTINGARNAR á blaða- og tímaritamarkaðnum hafa verið miklar á undanförnum misserum en bera því eflaust vitni hvers lags grósku er þar að finna. Nú síðast heyrðist af "blaðamannaskiptum" DV og Blaðsins en líkt og fyrst kom fram á bloggsíðu Péturs Gunnarssonar (fyrrum blaðamanns) hefur Þröstur Emilsson, fréttastjóri DV, verið ráðinn fréttastjóri á Blaðinu. DV fær hins vegar mann á móti, því að í gær fór frá Blaðinu yfir á DV, Trausti Hafsteinsson, frændi Sigurjóns M. Egilssonar. Svo virðist sem téður Sigurjón hyggist byggja upp myndarlegt fjölskyldublað því fyrir starfa á DV börn hans Janus og Hjördís.