ÍSLENSKA tölvuleikjafyrirtækið CCP, framleiðandi nettölvuleiksins Eve Online , er á meðal 100 framsæknustu tæknifyrirtækja Evrópu að mati viðskiptatímaritsins Red Herring . Þetta kemur fram í tilkynningu frá tímaritinu.

Hilmar Veigar Pétursson , framkvæmdastjóri CCP, segir að það sé mjög ánægjulegt að fyrirtækið hafi komist á þennan lista Red Herring. "Þetta hjálpar okkur að byggja upp vörumerkið CCP að því marki að laða til okkar viðskiptavini og starfsmenn," segir hann.