— Morgunblaðið/Kristinn
Í FYRRA fæddust 4.415 börn hér á landi, 2.258 drengir og 2.157 stúlkur. Þetta eru fleiri fæðingar en árið 2005 en þá fæddust hér 4.280 börn, samkvæmt tölum frá Hagstofunni, sem birtar voru í gær.

Í FYRRA fæddust 4.415 börn hér á landi, 2.258 drengir og 2.157 stúlkur. Þetta eru fleiri fæðingar en árið 2005 en þá fæddust hér 4.280 börn, samkvæmt tölum frá Hagstofunni, sem birtar voru í gær.

Algengasti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Árið 2006 mældist frjósemin 2,07 börn á ævi hverrar konu samanborið við 2,05 börn ári fyrr. Undanfarinn áratug hefur frjósemi verið nokkuð stöðug hér á landi, lægst varð hún 1,9.

Hagstofan segir, að í allflestum löndum Evrópu sé frjósemi umtalsvert lægri en á Íslandi og verði fólksfjölgun þar einkum vegna streymis aðkomufólks. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Evrópusambandsins er einungis eitt Evrópuland með meiri frjósemi en Ísland, þ.e. Tyrkland en þar var frjósemi 2,2.

Hagstofan segir, að lækkuð frjósemi hafi haldist í hendur við hækkaðan meðalaldur mæðra. Á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar var meðalaldur frumbyrja tæplega 22 ár. Eftir það hækkaði meðalaldur frumbyrja ört, var 23,3 árið 1986, 25 ár tíu árum síðar en er nú 26,4 ár. Sífellt fátíðara verður að konur eigi börn áður en þær ná 25 ára aldri, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni.