SÝNING Aðalbjargar Þórðardóttur með yfirskriftinni "Hamskipti" stendur nú yfir í Baksal Gallerís Foldar við Rauðarárstíg. Um er að ræða fyrstu sýningu listakonunnar.
SÝNING Aðalbjargar Þórðardóttur með yfirskriftinni "Hamskipti" stendur nú yfir í Baksal Gallerís Foldar við Rauðarárstíg. Um er að ræða fyrstu sýningu listakonunnar.
Undanfarin ár hefur Aðalbjörg snúið sér æ meira að málverkinu og eru málverk af svönum í ýmsum myndum og myndbreytingum í forgrunni á sýningunni. Verkin sýna svani sem náttúrufyrirbrigði, svani í mannslíki og svani sem táknmyndir ljóss og birtu.
"Hamskipti" stendur til 1. apríl.