FIMM bílar skemmdust í árekstri á bílastæði við Vestursíðu á Akureyri á mánudagskvöldið.

FIMM bílar skemmdust í árekstri á bílastæði við Vestursíðu á Akureyri á mánudagskvöldið.

Þegar ungur ökumaður setti bíl sinn í gang rauk bíllinn af stað, líklega vegna þess að frost var í blöndungnum, og missti ökumaðurinn vald á bílnum með þeim afleiðingum að hann ók á tvær mannlausar bifreiðar sem síðan köstuðust á aðrar tvær. Allar bifreiðarnar eru talsvert skemmdar en þrjár þeirra þó sýnu mest.