Korpúlfsstaðir.
Korpúlfsstaðir.
Í DAG verður opnuð á Korpúlfsstöðum sýningin Alien Structure in Urban Landscape. Sýningin er viðamikið samvinnuverkefni listafólks frá Reykjavík, Hamborg og Prag sem staðið hefur síðastliðin þrjú ár.
Í DAG verður opnuð á Korpúlfsstöðum sýningin Alien Structure in Urban Landscape. Sýningin er viðamikið samvinnuverkefni listafólks frá Reykjavík, Hamborg og Prag sem staðið hefur síðastliðin þrjú ár. Viðfangsefnið er borgarmenning og aðkoma fólks að samfélagi ólíkra borga. Níu listamenn, þrír frá hverri borg, hafa hist reglulega undanfarin ár, unnið að listaverkum um borgir í samræðu hver við annan og sýnt afraksturinn. Sýningin verður opnuð á Korpúlfsstöðum í dag kl. 19 og verður einnig opin laugardag og sunnudag kl. 13-19.