Uppgert Nýja húsnæðið er samtals 460 fm, sem rúma veitingahús, sælkeraverslun og hádegisverðarstað.
Uppgert Nýja húsnæðið er samtals 460 fm, sem rúma veitingahús, sælkeraverslun og hádegisverðarstað.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
KAUPVANGSSTRÆTI 6 var að miklu leyti tekið í notkun í gær eftir endurbætur og mun nú hýsa veitingastaðinn Friðrik V. Húsið er breytt að innan jafnt sem utan, en ytra heldur það að stórum hluta af upprunalegu útliti sínu.

Á efri hæð hússins, sem búið er að taka í notkun, er veitingasalur, veislusalur, bar, eldhús, starfsmannaaðstaða, móttaka og salerni. Á neðri hæðinni verður sælkeraverslun og hádegisverðarstaður, en lokið verður við að innrétta þá hæð í mánaðarlok, að sögn Arnrúnar Magnúsdóttur, annars eiganda veitingastaðarins Friðriks V.

Framkvæmdir við húsið hófust í byrjun mars en í febrúar undirrituðu staðurinn og KEA samning um verkefnið og leigu hússins til 10 ára. Verkið var því fljótunnið og klárað þegar háannatími ferðamennskunnar á Akureyri er ríkjandi. Fyrstu tvo dagana eru væntanlegir á fjórða hundrað gestir á veitingastaðinn.

"Aðstaðan verður betri og þjónustan enn fjölbreyttari. Kjarninn í ímynd okkar verður þó sem fyrr að byggja á hráefni úr heimahéraði. Það gerum við á veitingastaðnum og í nýju sælkeraversluninni þar sem ímynd eyfirskra matvæla verður haldið á lofti með ferskum matvörum og spennandi nýjungum. Við viljum vera veitingahús í fremstu röð, staðsett í hjarta Eyjafjarðar, og það að vera komin inn í þetta hús er gleðiefni fyrir okkur," segir Friðrik V. Karlsson, aðaleigandi staðarins.