Rík Leikararnir Michael Douglas og Catherine Zeta -Jones eru rík af peningum og börnum.
Rík Leikararnir Michael Douglas og Catherine Zeta -Jones eru rík af peningum og börnum. — Reuters
CATHERINE Zeta-Jones hótaði að yfirgefa Michael Douglas ef hann eignaðist ekki með henni börn. Leikkonan ljóstraði því upp á dögunum að Michael hefði beðið hennar með orðunum: "Ég vil vera faðir barnanna þinna.

CATHERINE Zeta-Jones hótaði að yfirgefa Michael Douglas ef hann eignaðist ekki með henni börn.

Leikkonan ljóstraði því upp á dögunum að Michael hefði beðið hennar með orðunum: "Ég vil vera faðir barnanna þinna." Katarína gekk þó úr skugga um að í orðum Mikjáls væri fólgin alvara.

Í viðtali við Parada-tímaritið segir hún: "Fáeinum mánuðum eftir að við fórum að krunka okkur saman hafði ég fallið fyrir honum. En ég varð að fullvissa mig um eitt. Ég sneri mér að honum og spurði: "Viltu raunverulega eignast börn?" Og ég hélt í eitt andartak að hann hygðist svara með orðunum: "Ég á son. Hann heitir Cameron." Þá hefði ég þurft að segja: "Bless." Ég minnist þess að mæla ögrandi: "Án barna get ég ei lifað." Og hann svaraði: "Ekki ég heldur.""

Michael og Catherine gengu í heilagt hjónaband árið 2000, og eiga nú tvö börn. Michael átti fyrir 28 ára son, áðurnefndan Cameron.