Gullbrúðkaup | Gullbrúðkaup eiga þau Ásdís Magnea Gunnlaugsdóttir og Sigurjón Jóhannsson föstudaginn 13. júlí. Þau giftu sig á Siglufirði fyrir 50 árum og hafa búið þar alla tíð síðan.
Gullbrúðkaup | Gullbrúðkaup eiga þau Ásdís Magnea Gunnlaugsdóttir og Sigurjón Jóhannsson föstudaginn 13. júlí.
Þau giftu sig á Siglufirði fyrir 50 árum og hafa búið þar alla tíð síðan. Þau eiga þrjú börn, tíu barnabörn og eru barnabarnabörnin orðin fjögur. Þau hjón eru á ferðalagi um Strandir með fjölskyldu sinni og fagna með vinum í Djúpuvík.