Kónguló.
Kónguló.
SVALA Ólafsdóttir opnar ljósmyndasýninguna Með kónguló í vasanum í dag í gallerí Auga fyrir auga. Svala er fædd og uppalin á Íslandi en hefur búið erlendis í nokkurn tíma. Í verkum hennar má sjá sterk tengsl við land og þjóð.

SVALA Ólafsdóttir opnar ljósmyndasýninguna Með kónguló í vasanum í dag í gallerí Auga fyrir auga.

Svala er fædd og uppalin á Íslandi en hefur búið erlendis í nokkurn tíma. Í verkum hennar má sjá sterk tengsl við land og þjóð. Svala lærði við listastofnunina í San Francisco og Háskólann í Texas.

Með kónguló í vasanum verður opnuð kl. 18 í dag og stendur opnunin til kl. 21.

Gallerí Auga fyrir auga er á Hverfisgötu 35 og er opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14 til 18 eða eftir samkomulagi.