Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen
EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar í Barcelona sækja Racing Santander heim í fyrstu umferð spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu sem leikin er dagana 26. og 27. ágúst. Fyrsti heimaleikur þeirra er síðan gegn baskaliðinu Athletic Bilbao viku síðar.

Barcelona byrjar undirbúningstímabilið með ferð til Skotlands og mætir þar Dundee United í fyrsta æfingaleik sínum þann 26. júlí. Tveimur dögum síðar leika Eiður Smári og félagar við Hearts í Edinborg og þar gæti unglingalandsliðsmaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson frá Eskifirði fengið að spreyta sig gegn Barcelona en hann er í aðalliðshópi Hearts.

Barcelona fer síðan til Kína og Japan og mætir Beijing Guoan þann 5. ágúst og Yokohama Marinos þann 7. ágúst. Rúmri viku síðar verður liðið komið til Þýskalands og spilar þar æfingaleik gegn Bayern München.