Með logana á lofti Þessi eldspúandi ungmenni komu fram á opnunarhátíð LungA í fyrra.
Með logana á lofti Þessi eldspúandi ungmenni komu fram á opnunarhátíð LungA í fyrra.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þær helgar sem Björt Sigfinnsdóttir er ekki upptekin við að svara á útlensku fyrirspurnum um Seyðisfjörð og nágrenni nýtur hún þess að slappa af og hitta góða vini. Hún sagði Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur frá frelsinu fyrir austan.

Sumrin eru Seyðisfjarðartími, a.m.k. fyrir heimameyna Björt Sigfinnsdóttur sem skundar austur um leið og skólanum í Reykjavík sleppir á vorin. Þar starfar hún á upplýsingamiðstöðinni yfir sumartímann og við skipulagningu LungA, Listahátíð ungs fólks Austurlandi, sem einmitt hefst núna um helgina.

"Dæmigerð helgi hjá mér felst í afslöppun – að eyða góðum tíma með vinum og kannski kíkja á kaffihús eða á völlinn," svarar hún innt eftir því hvað drífur á daga hennar um helgar. "Á föstudagskvöldum hittumst við vinirnir gjarnan í heimahúsi og hlustum á góða tónlist. Á eftir kíkjum við kannski út á lífið og þá verður lókalbarinn, Kaffi Lára, oft fyrir valinu."

Ís á Egilsstöðum

Vinnan stýrir því hvort Björt sefur lengur um helgar en aðra daga. "Ef ég er í fríi þykir mér rosalega gott að sofa út eða leggjast út í sólbað og kúra þar aðeins lengur. Á eftir fer ég oft í góðan göngutúr með vinunum, til dæmis upp í fjall að tjörninni sem þar er eða út með firðinum. Stundum kíkjum við upp á Egilsstaði og kaupum okkur ís. Þannig að maður reynir að vera dálítið menningarlegur og njóta náttúrunnar hérna meðan maður hefur hana."

Matur er ofarlega á lista hjá Björt yfir frídagana. "Við krakkarnir höfum stundað það að fara út að borða saman á laugardagskvöldum enda eru tveir alveg stórkostlegir matsölustaðir hérna á Seyðisfirði. Í rauninni eru þrjú kaffihús og einn bar að auki þannig að það er úr nógu að velja."

Hún játar því að talsverður munur sé á Seyðisfirði og stórborgarlífinu fyrir sunnan. "Þú getur rétt ímyndað þér," segir hún með áherslu. "Maður er svo frjáls hér fyrir austan og það er náttúrlega ein af ástæðunum fyrir því að maður kemur sumar eftir sumar eftir sumar."

Sjötíu gestir frá sex löndum

Önnur ástæða er LungA, því Björt hefur verið viðriðin hátíðina frá upphafi en hún var fyrst haldin árið 2000. Um er að ræða alhliða listahátíð þar sem ungt fólk tekur þátt í skapandi listasmiðjum og nýtur listviðburða af öllu tagi. "Núna er undirbúningur á algjöru lokastigi því setningarathöfnin er á sunnudag," segir Björt en hátíðin varir í viku. "Í dag tökum við á móti fyrstu erlendu þátttakendunum en við eigum von á sjötíu krökkum frá sex löndum. Þetta er því formlega orðin alþjóðleg hátíð."

Björt verður því í gestgjafahlutverki um helgina, ekki síst í dag og á morgun eða þar til hátíðin verður sett og mun m.a. fara með hina erlendu gesti í gönguferð á laugardag í Skálanes, sem er við opið á Seyðisfirði. Aðspurð segist hún ekki eiga von á því að hátíðin snúist upp í einhvers konar útihátíð. "Við höfum sent frá okkur fréttatilkynningu um unglingadrykkju því við kærum okkur ekki um krakka undir aldri, blindfulla upp um alla veggi," segir hún ákveðin. "Við höfum gert vissar ráðstafanir og það verður t.a.m. foreldrarölt og mikil gæsla því við viljum gera allt sem við getum til að þetta fari á besta veg. Enda snýst LungA fyrst og fremst um menningu og kynningu á listum – að kveikja neistann hjá þessum krökkum. Aðalatriðið er að njóta lista saman."

Björt mælir með

Gönguferðin Ganga í Skálanes á góðviðrisdegi.

Bíóhúsið Mini Ciné á Seyðisfirði sem er minnsta bíó í Evrópu. www.thefreedomcouncil.com.

Menningin Heimsókn í Menningarmiðstöðina Skaftfell á Seyðisfirði, Bistro og

internetcafé í anda Dieter Roths, gallerí og listamannaíbúð. www.skaftfell.is.

Gistingin Hótel Aldan í hjarta Seyðisfjarðar. Þar má einnig fá hágæða mat af bestu gerð. www.hotelaldan.is.

Sportið Að skella sér á fótboltavöllinn á Seyðisfirði og sjá myndarlegasta knattspyrnulið landsins, Hugin, leika.