Smekkmaður Baltasar getur farið með ljóð eftir Lorca og kýs að syngja dúett með Noruh Jones.
Smekkmaður Baltasar getur farið með ljóð eftir Lorca og kýs að syngja dúett með Noruh Jones. — Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Baltasar Kormákur, leikari, leikstjóri og kvikmyndagerðarmaður, hlaut á dögunum Karlovy Vary-verðlaunin fyrir verk sitt, Mýrina, stærstu verðlaun sem íslensk bíómynd hefur hlotið á erlendri kvikmyndahátíð. Manninn sjálfan þarf vart að kynna.
Lýstu eigin útliti:

Ég er Mári í lopapeysu.

Hver hljóðritaði lagið "Undir tungunnar rót" og hver er höfundur lags og texta?

(Spurt af síðasta aðalsmanni, Bjarna Arasyni.)

Úff. Ekki grænan grun. Aldrei heyrt um þetta.

Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér?

Jack Black. Óþolandi. Því stærri sem hlutverkin verða, þeim mun ömurlegri verður hann. Þetta flokkast ekki undir leiklist hjá honum, heldur kæki.

Hvaða bók lastu síðast?

The Bell Jar eftir Sylviu Plath.

Á hvaða plötu myndirðu hlusta undir ragnarökum?

Amiinu-plötuna nýju. Ég myndi velja að hlusta á eitthvað fallegt.

Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfan þig?

Gráu hárin í vanganum.

Hver er þinn uppáhaldsleikstjóri?

Nikita Mikhalkov, Peter Weir, Milos Forman, ég gæti haldið áfram í allan dag...

Besta lag allra tíma?

Heyrðu, það er aðallagið í Emir Kusturica-myndinni Time of The Gypsies , lag eftir

Goran Bregovic, sem kom hingað á listahátíð.

Hefurðu þóst vera að fara til útlanda til þess að losna við að mæta á "blint stefnumót"?

Nei, en ég hef þóst vera á leið til útlanda. Einu sinni svaf ég yfir mig og laug að öllum í fjölskyldunni að ég væri á leið til Spánar að hitta fólkið. Ég þorði náttúrlega ekki að viðurkenna að ég hefði sofið yfir mig. Þetta setti allt á annan endann...

Geturðu farið með ljóð?

Já... (muldrar brot úr kvæði eftir Lorca, blaðamanni til mikillar ánægju) ...einu sinni kunni ég þetta nú allt saman. Ofboðslega fallegt ljóð.

Með hverjum myndirðu helst vilja syngja dúett?

Ja, með Noruh Jones bara. Myndum kannski láta heyrast aðeins hærra í henni samt...

Hvort kýstu að aka um sléttur Bandaríkjanna á rauðum blæjubíl, þar sem sjóðheitur vindur glefsar í hárið, eða um íslenska hálendið á upphækkuðum torfærukagga með dúnmjúka loðhúfu?

Ég myndi kjósa að aka um íslenska hálendið á ameríska bílnum. Sá eitt sinn svarta fjölskyldu á opnum bleikum kadilják keyrandi upp og niður hálendi Íslands. Hafa ábyggilega verið af vellinum, og í sumarfríi. Held þetta sé einhver mest abstrakt sýn sem ég hef séð. Og ég hugsaði: Djöfull er þetta kúl að ferðast svona!

Hvaða kvikmynd eða sjónvarpsefni hefur haft mest áhrif á þig?

Það eru Degalógarnir (Boðorðin 10) eftir Kieslowski.

Það er semsagt klukkutíma löng mynd um hvert og eitt boðorð. Hún er mögnuð – það ætti að sýna hana í öllum skólum. Hún er unnin út frá því hvernig boðorðin fúnkera í heiminum nú til dags. Oft finnst okkur þetta bara vera einhverjir gamlir bókstafir, dauðir bókstafir.

Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda?

"Hefurðu séð Degalógana/Boðorðin 10 eftir Kristof? Og ef ekki, horfðu þá á hana hið snarasta!"