* Þeir aðdáendur Sigur Rósar sem ekki urðu nógu snöggir til þegar viðhafnarútgáfa af plötunni Takk kom út fá nú tækifæri til að lappa upp á safnið því um 100 eintök af útgáfunni fundust nýverið í ótilgreindri vöruskemmu og fást nú keypt í netverslun...
* Þeir aðdáendur Sigur Rósar sem ekki urðu nógu snöggir til þegar viðhafnarútgáfa af plötunni Takk kom út fá nú tækifæri til að lappa upp á safnið því um 100 eintök af útgáfunni fundust nýverið í ótilgreindri vöruskemmu og fást nú keypt í netverslun sveitarinnar. Platan kom út á sínum tíma í 3.000 eintökum en meðfylgjandi eru 48 síður af handmáluðum myndum eftir hljómsveitarmeðlimi auk heimildamyndar á mynddiski.