Halló krakkar!
Ég heiti Patti póstkassi. Það skemmtilegasta sem ég veit er að fá bréf frá sniðugum og klárum krökkum. Ég yrði alveg óskaplega ánægður ef þið mynduð senda mér teikningar, brandara, ljóð, uppskriftir, sögur eða hvað sem ykkur dettur í hug. Þá sé ég til þess að það sem þið sendið inn verði birt í blaðinu.
Ef ykkur langar til að eignast pennavini getið þið líka auglýst eftir þeim í Barnablaðinu. Ég yrði nú líka mjög ánægður ef þið mynduð segja mér örlítið frá ykkur sjálfum í bréfinu.
Heimilisfangið mitt er:
Morgunblaðið
Börn - Patti póstkassi
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Ég kveð að sinni.
Hlakka til að heyra frá ykkur,
Patti póstkassi