Guðrún Glæpasögurnar fóru flestar fyrir ofan garð og neðan hjá Guðrúnu, nema Móðurlaus Brooklyn eftir Jonathan Lethem, sem hún segir athyglisverða bók í þeim flokki.
Guðrún Glæpasögurnar fóru flestar fyrir ofan garð og neðan hjá Guðrúnu, nema Móðurlaus Brooklyn eftir Jonathan Lethem, sem hún segir athyglisverða bók í þeim flokki. — Árvakur/Kristinn Ingvarsson
Lesarinn Í upphafi árs eru jólabækurnar manni hugleiknastar þegar fjalla á um fýsilegar bækur. Að þessu sinni voru íslenskir rithöfundar flestir í essinu sínu.

Lesarinn

Í upphafi árs eru jólabækurnar manni hugleiknastar þegar fjalla á um fýsilegar bækur. Að þessu sinni voru íslenskir rithöfundar flestir í essinu sínu. Ævisögurnar voru meira að segja áhugaverðar og ungskáld þeyttu ljóðalúðurinn svo eftir var tekið. Glæpasögurnar fóru þó flestar fyrir ofan garð og neðan hjá mér, nema Móðurlaus Brooklyn eftir Jonathan Lethem, sem er einhver athyglisverðasta bók sem ég hef lesið í þeim flokki. Um dagana hef ég grátið ofan í ófáar bækur en e.t.v. hvað sárast ofan í bækur Erich Maria Remarque. Veröld mín væri einnig snöggtum fátæklegri hefði ég ekki lesið Veröld sem var eftir Stefán Zweig og Forseta lýðveldisins eftir Miguel Angel Asturias.

Guðrún Ingólfsdóttir, bókmenntafræðingur.