Varfærin Íslensk og norsk yfirvöld vilja sem minnst segja sig um ástandið á Srí Lanka að sinni. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra á fundinum í gær.
Varfærin Íslensk og norsk yfirvöld vilja sem minnst segja sig um ástandið á Srí Lanka að sinni. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra á fundinum í gær. — Árvakur/Kristinn
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is FUNDAÐ var með íslensku friðargæsluliðunum, sem eru nýkomnir heim frá Srí Lanka eftir uppsögn vopnahléssamninga á milli stjórnvalda og samtaka Tamíl-Tígra, í utanríkisráðuneytinu í gærmorgun.

Eftir Önund Pál Ragnarsson

onundur@mbl.is

FUNDAÐ var með íslensku friðargæsluliðunum, sem eru nýkomnir heim frá Srí Lanka eftir uppsögn vopnahléssamninga á milli stjórnvalda og samtaka Tamíl-Tígra, í utanríkisráðuneytinu í gærmorgun. Allir Íslendingar nema einn, Jónas Gunnar Allansson, hafa verið kallaðir heim og eru annaðhvort komnir eða á leiðinni, en undanfarið hafa níu Íslendingar og 22 Norðmenn verið þar við eftirlitsstörf. Jónas Gunnar verður áfram í höfuðstöðvum samnorrænu eftirlitssveitanna, SLMM, í höfuðborginni Colombo ásamt tíu Norðmönnum við lokafrágang sem á að ljúka núna fyrir lok febrúar. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra á blaðamannafundi í gær.

Varfærni gætir nú í yfirlýsingum utanríkisráðuneytisins við fjölmiðla og munu friðargæsluliðarnir ekki tjá sig um ástandið á Srí Lanka að sinni, eða þar til allir starfsmenn SLMM verða farnir þaðan, af ótta við að hafa bein áhrif á ástandið þar. Að sögn Ingibjargar er verið að ganga frá eignum, gögnum og skjölum SLMM í Colombo, og fara yfir mál þarlends fólks sem hefur starfað fyrir Norðmenn og Íslendinga. Hafa aðstæður hvers og eins verið skoðaðar og litið til þess hvort hægt sé að finna fólkinu önnur störf, jafnvel hjá alþjóðastofnunum.

Starfsfólk ekki almennt í hættu

Norrænu sveitirnar hafa verið gagnrýndar harðlega úr báðum áttum á Srí Lanka og m.a. fengið kaldar kveðjur frá talsmanni stjórnarhersins, sem segir þær gagnslausar. Aðspurð sagði ráðherra mismunandi eftir einstaklingum hvort þeir sem hefðu starfað fyrir SLMM væru nú í hættu staddir. „Það er sjálfsagt mjög mismunandi eftir því hvaða störfum þeir hafa gegnt. Ekki er hægt að segja að það fólk sé almennt í hættu. En það getur vel verið í einhverjum tilvikum og það er verið að fara yfir það,“ sagði hún.

Samskipti utanríkisráðuneyta Íslands og Noregs hafa að hennar sögn verið afar náin undanfarið og vildi hún ekkert gefa út um hvort þeim starfsmönnum sem hætta er búin yrði boðið að flytjast hingað til lands. Kvað hún það einfaldlega samstarfsverkefni Íslendinga og Norðmanna, sem farið yrði yfir í framhaldinu.

Á fundinum með friðargæsluliðunum var farið yfir stöðu mála á Srí Lanka, reynslu þeirra af verunni þar og mat þeirra á mögulegu framhaldi deilunnar. Þar komu fram mikil vonbrigði með þá þróun sem orðið hefur að undanförnu. „Hins vegar fannst mér koma mjög skýrt fram hjá okkar fólki að þetta kom þeim í sjálfu sér ekki á óvart. Þeim hefur fundist að til þessara tíðinda væri að draga og bjuggust jafnvel við því að þetta gerðist strax í desember,“ sagði Ingibjörg Sólrún, en tugir Tamíl-Tígra féllu í átökum við stjórnarherinn rétt fyrir jól og pólitískur talsmaður þeirra var felldur í nóvember.

Krefjandi aðstæður á Srí Lanka

„Vandamálið í þessu sambandi er að það er ekkert samband á milli aðila þarna, engin pólitísk samtöl eiga sér stað á milli þeirra. En hins vegar er það mat okkar fólks eins og annarra sem að þessu koma að á þessu máli er bara til pólitísk lausn, beiting hervalds mun ekki leysa þetta mál,“ sagði Ingibjörg Sólrún ennfremur.

„Við erum þakklát og afar stolt af framlagi okkar fólks á Srí Lanka og hvernig það hefur starfað þar við mjög krefjandi aðstæður. Það skynjaði ég mjög sterkt þegar ég fundaði með þeim hverju þau hafa orðið vitni að, hvað þau hafa upplifað og séð. Þau hafa staðið sig vel,“ sagði Ingibjörg Sólrún.

Breyting fyrir friðargæsluna

Ljóst er að með þessari breytingu losnar nokkuð um hjá íslensku friðargæslunni, enda var næststærsta verkefni hennar á Srí Lanka. Um framhaldið sagði ráðherra að farið skyldi yfir stöðu hvers og eins. „Sumir starfsmenn voru með samning sem var að klárast, aðrir eiga lengri tíma eftir af sínum starfstíma. Við munum fara yfir það hvaða öðrum verkefnum við getum sinnt og höfum verið að ræða mögulega innkomu í verkefni á vegum Sameinuðu þjóðanna nú í maí. Það er eflaust enginn hörgull á verkefnum ef út í það er farið, en það þarf alltaf dálítinn tíma til að undirbúa slíkt.“

Í hnotskurn
» SLMM hefur starfað á Srí Lanka frá 2002, á grundvelli vopnahléssamnings á milli aðila, sem nýlega var sagt upp.
» Átök eru hörðust í Tamílahéruðum í norðurhluta landsins, en Colombo er við suðvestanverða strönd landsins.
» Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur sinnt verkefnum á Srí Lanka og hefur enn starfsmenn þar. Ekki er óttast um öryggi þeirra enn sem komið er.