Umdeildur Tom Cruise.
Umdeildur Tom Cruise.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
LEIKKONAN Nicole Kidman íhugaði að gerast nunna eftir að hún skildi við Tom Cruise. Kidman, sem var gift Cruise frá 1991 til 2001, var í svo mikilli ástarsorg eftir skilnaðinn að hún var nálægt því að ganga í klaustur sem tekur á móti fráskildum konum.

LEIKKONAN Nicole Kidman íhugaði að gerast nunna eftir að hún skildi við Tom Cruise. Kidman, sem var gift Cruise frá 1991 til 2001, var í svo mikilli ástarsorg eftir skilnaðinn að hún var nálægt því að ganga í klaustur sem tekur á móti fráskildum konum. Þetta kemur fram í nýrri bók breska rithöfundarins Andrew Morton sem nefnist Tom Cruise:An Unauthorised Biography eða Tom Cruise: Ósamþykkt ævisaga .

Í bókinni kemur einnig fram að vísindakirkjan hafi borið mikla ábyrgð á því að þau skildu að borði og sæng.

Morton óskaði eftir viðtali við Cruise á meðan hann skrifaði bókina en Cruise hafnaði þeirri beiðni.