— Árvakur/Golli
„Það að Ólafur Stefánsson er meiddur og verður ekki með í næstu leikjum þýðir að nú er komið að skuldadögum hjá drengjunum sem hann hefur leitt í gegnum árin.
„Það að Ólafur Stefánsson er meiddur og verður ekki með í næstu leikjum þýðir að nú er komið að skuldadögum hjá drengjunum sem hann hefur leitt í gegnum árin. Þeir verða að sýna og sanna að þeir geti þetta án hans og þeir verða bara að gera það og ég held að þeir geri það... Nú verða þeir að sýna hvort þeir eru menn eða mýs,“ segir Sigurður Sveinsson um gengi íslenska handboltalandsliðsins á EM.